kosning til heimavistarráðs

Þá er komið að því, kæru vistarbúar. Nú er komið að því að þið fáið að kjósa ykkur fulltrúa til heimavistarráðs, en það er skipað sjö íbúum heimavistar. Samkvæmt lögum um heimavistarráð á ráðið að vera skipað fjórum íbúum sem eru nemendur í MA og þremur sem eru nemendur í VMA. Níu gáfu kost á sér til setu í heimavistarráði í vetur,  þrír eru nemendur í MA og eru þeir því sjálfkjörnir. Þar sem aðeins þrír frá MA gáfu kost á sér færist fjórða sætið yfir til VMA íbúa. Kjósa þarf í þau fjögur sæti sem eftir eru á milli þeirra sex VMA íbúa sem gáfu kost á sér til setu í heimavistarráði. Munu sexmenningarnir á næstu dögum kynna sig og málstað sinn fyrir ykkur. Hér á eftir koma nöfn þeirra sem í framboði eru: Hjálmar Björn Guðmundsson, Ómar Eyjólfsson, Hilmar Sigurjónsson,  Anna Þorsteinsdóttir, Einar Bjarni Björnsson og Guðrún Bjarnveig  Jónsdóttir Hér eru svo nöfn þeirra sem eru sjálfkjörin:  Jóhanna Stefánsdóttir, Þorbjörg Arna Unnsteinsdóttir og Jón Árni Magnússon

sumarfrí

Sumarfrí starfsmanna heimavistar Lundar er frá 25. júní - 5. ágúst. Hér að neðan má lesa svör við helstu spurningum sem brenna á umsækjendum um heimavist.   Umsókn um heimavist má senda á netfang húsbónda sigmundur@heimavist.is reynt verður að svara því hvort viðkomandi hafi fengið vistarpláss strax og hægt er, eða í síðasta lagi 7. ágúst.   Svör við umsóknum fara í póst dagana 25. - 27. júní. Greiðsluseðlar berast frá banka nokkrum dögum síðar. Eindagi greiðsluseðla er 20. júlí. Tekið verður inn af biðlista 5. -  6. ágúst. Séróskir, t.d. um herbergisfélaga verða að hafa borist fyrir 1. ágúst. Ekki verður hægt að fá upplýsingar um niðurröðun á herbergi fyrir 18. ágúst. Leigusamningar og aðrir pappírar verða sendir út viku fyrir upphaf skóla. Þvottanúmer nýrra íbúa heimavistar berast einnig viku fyrir upphaf skóla. Gengið er frá skráningu í mötuneyti við komu á heimavist.    Ef greiðsluseðill berst ekki er hægt að greiða staðfestingar- og tryggingagjald inn á reikning Lundar að upphæð kr. 26.000. Bankaupplýsingar: 0302-26-106252. Kennitala Lundar: 630107-0160. Mikilvægt er að kennitala verðandi íbúa komi fram sem skýring við greiðslu. Staðfestingar- og tryggingagjald fæst ekki endurgreitt ef hætt er við búsetu á heimavist.

UMSÓKN UM HEIMAVIST

Umsókn um heimavist Hér til hliðar má finna umsókn um heimavist fyrir veturinn 2008-2009. Þegar hún hefur verið fyllt út þarf að koma henni hingað til okkar á heimavistina Það má gera það á þrennan hátt. Með pósti og þá stílað á Lundur heimavist MA/VMA Eyrarlandsvegi 28, 600 Akureyri og bt. Sigmundar Með tölvupósti á netfangið sigmundur@heimavist.is og þarf þá að fylla út umsóknareyðublað og senda sem viðhengi. Nú eða bara með því að koma og afhenda starfsmanni umsóknina og líta á húsakynni í leiðinni. Núverandi íbúar eru beðnir um að skila umsóknum í anddyri eða til húsbónda. A.T.H. Allar séróskir t.d. um herbergi, herbergisfélaga, nágranna eða aðrar óskir þurfa að koma fram á umsókn eða berast á netfangið sigmundur@heimavist.is ekki síðar en 1. ágúst. Viljum við sérstaklega benda nýnemum á að senda inn sínar óskir á netfangið hér að ofan þar sem aðeins er boðið upp á að haka við heimavist á rafrænni umsókn um skólavist en ekki tilgreina óskir. Umsóknarfrestur er til 11. júní.

Takk fyrir okkur

  Nú er síðasta vikan á þessu skólaári runninn upp. Síðasti matseðill vetrarins frá mötuneytinu kom inn á síðuna í morgun. Heimavistarráð skólaárið 2007-2008 þakkar fyrir sig og vonar um leið að allir hafi átt góðan vetur ! Gleðilegt  sumar og takk fyrir okkur .   kveðjur, Heimavistarráð. 

Tónlistarkvöldvaka

Næstkomandi miðvikudagskvöld 2.apríl verður haldin tónlistarkvöldvaka á heimavistinni. Fyrirkomulagið verður hvorki flókið né formlegt heldur munu þeir sem vilja koma fram og spila lög eða syngja einungis þurfa að skrá atriðið niður á blað í anddyrinu. Ekki verður formlegur kynnir heldur munu atriðin rúlla áfram og hvetjum við alla tilvonandi tónlistarmenn til að taka þátt. Þeir sem vilja spila eða syngja sjálfir útvega allt sem þarf í atriðið. Planið er að gera þetta að notalegri kvöldstund þar sem menn geta annað hvort hlustað á harðasta rokk eða mildan jazz og borðað snakk og popp í góðra vina hópi. Nánar síðar !

Gleðilega páska

  Gleðilega páska alllir saman og hafið það gott yfir hátíðina. Hittumst hress á ný eftir páska !

Áframhaldandi poolmót

  Haldið verður áfram með Poolmót þriðjudagskveldið 11.mars Leikar hefjast klukkan 18:00 og standa fram eftir kveldi þar til einn maður stendur uppi sem sigurvegari. Keppendur eru hvattir til að kynna sér hvenær þeir eiga leik á tímatöflu niðri lobbýi sem og uppí setustofu. Svo auðvitað hvetjum við fólk til að kíkja uppí setustofu meðan leikar standa og fylgjast með. Fyrir hönd Heimavistarráðs Hjálmar&Ómar

Poolmót hefst á morgun

  Búið er að draga keppendur saman í fyrstu umferð mótsins og hefst hún á morgun. Þeir sem skráðu sig eru hvattir til að fara fram í anddyri og sjá hvenær þeir eiga að keppa og á móti hverjum. Keppendur verða sjálfir að bera ábyrgð á að mæta í sinn leik. Dómarar verða Ómar Eyjólfs og Hjálmar úr heimavistarráði. Öllum vistarbúum er velkomið að horfa á. Góða skemmtun !

Tapað / Fundið

Ipod spilari fannst í þvottahúsinu. Ef einhver saknar hans getur hann vitjað hans þar !    

Poolmót

Skráning er hafin í poolmót sem verður í næstu viku. Spilað er eftir útsláttarfyrirkomulagi, einn á móti einum, maður á móti manni. Nánari upplýsingar veitir hinn háæruverðugi og fallegi Ómar Eyjólfsson frá Vopnafirði (Family Guy gaurinn). Bjallið bara í hann! Hægt er að skrá sig á blað í anddyrinu. Ylhýrar kveðjur, Heimavistarráð