Próftími á heimavist - reglur á próftíma
27.05.2013
• Próftími hefst föstudaginn 24. maí kl. 22:00
• Á próftíma á að vera næði allan sólarhringinn
• Ekki er heimilt að hafa næturgesti meðan á próftíma stendur
• Morgunmatur er virka daga kl. 7:15 – 9:15 og um helgar kl. 10:00 – 13:00
• Á próftíma er drykkur alla daga kl. 15:00 - 16:30, einnig um helgar
• Hljómflutningstæki og sjónvörp á herbergjum og setustofum mega alls ekki valda ónæði
• Seta í anddyri og á göngum skal takmörkuð
• Reglum lýkur að loknum síðasta reglulega prófdegi
• Hafið samband við öryggisvakt í síma 1602 ef þið verðið fyrir ónæði
Sýnum öll tillitsemi
Starfsfólk Heimavistar MA og VMA