17.12.2009
Kæru íbúar, fjölskyldur íbúa, starfsfólk og aðrir heimasíðugestir
!
Við viljum óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Takk kærlega fyrir
liðið ár, það hefur bara verið frábært ! Við vonum að þið munið hafa það sem allra best yfir jólin og
áramótin. Og kæru heimavistaríbúar! Vonandi sjáum við ykkur hress og kát á nýju ári, fegin að vera laus úr
jólafríinu og mætt fersk til þess að fara aftur í skólann !
Jólaknús,
Heimavistarráð
09.12.2009
Kæru vefsíðuskoðendur !
Núna eru loksins komnar inn myndir frá jólahlaðborðinu sem var haldið 3.des síðastliðinn.
Það var bara æðisleg kvöldstund, allir ánægðir með hvernig það lukkaðist.
Frábær og framandi matur, hangiketið var vinsælt en einnig var sebrahesturinn og antilópan mjög spennandi.
01.12.2009
Jæja kæru íbúar !
Nú þegar senn líður að jólum, þá höfum við ákveðið að halda jólaskreytingakeppni. Bæði ætlum við
að hafa keppni milli hurða og ganga. Við vitum alveg að einhverjir VMA-ingar eru farnir í jólafrí, en það eru samt mjög margir enn á
vistinni svo nóg af fólki til að taka þátt í þessari keppni :D
Hún virkar einfaldlega þannig að þið skreytið hurðina ykkar(og ganginn einnig)..
Reynum að gera "kózý"jólastemningu á vistinni, svona til að koma okkur öllum í jólaskap, því við vitum að það er
sumum mjög erfitt að vera ekki heima í öllum jólaundirbúningnum.
Jólaknús,
heimavistarráð.
27.11.2009
Kæru íbúar.
Hið árlega jólahlaðborð Heimavistar verður haldið 3.des. næst komandi. Það hefst klukkan 18:00 og stendur u.þ.b til 20:00. Það
verður margt girnilegt, framandi og gott á borðum og við hvetjum ykkur öll til þess að mæta ! Reyndar eru VMA-ingarnir byrjaðir í prófum, en
hvað er betra en að taka sér smá frí frá prófalestri og kíkja niður í mötuneyti og renna í jólaskapið með
félögunum og fitna af góðum mat? Við verðum búin að skreyta salinn og að sjálfsögðu verður jólatónlist.
Þannig að við biðjum bara sem flesta á heimavist að mæta og hafa notalega stund með okkur öllum!
Jólakveðja,
heimavistarráð.
ATH!! Snyrtilegur fatnaður er skylda! Þeir sem ekki mæta í snyrtilegum fötum fá ekki að borða.. ! :D
25.11.2009
Halló halló elskurnar okkar,
Nú er illt í efni! Svo virðist sem fötin okkar bara strjúki burt.
Ef þú rekur flóttafataheimili inná herberginu þínu, þá minnum við á það að fötunum þykir voða
vænt um Sigrúnu og Svövu í þvottahúsinu, þeim þykir voða vænt um þau.
Þannig að ef þú finnur föt sem þú átt ekki, hvort sem að þau hafi óvart lent í hólfinu þínu eða
þig hefur vantað föt á djammið þá væri alveg yndislegt að þú gætir bara skilað þeim aftur í
þvottahúsið. Sumir, ef ekki lang flestir eiga mjög dýr föt, og þó að þú fáir 13.000 kr. peysu fría í
hólfið þitt er það ekkert sniðugt ef þú týnir svo 26.000 kr. gallabuxnum í staðinn.
Nú ef einhver er feiminn, hefur t.d. fengið vitlausar nærbuxur þá þarf enginn að vita af því, sá hinn sami getur bara rennt
því í gegn með hinum þvottinum.
Kveðja,
Heimavistarráð sem vill ekki enda nakið fyrir jól :)
13.11.2009
Íbúar sem hætta um annarskil.
Athygli er vakinn á því að uppsagnarfrestur húsaleigusamninga
við annarskil er einn mánuður m.v. næstu mánaðarmót frá uppsögn samningsins. Þetta á eingöngu við þá
nemendur sem hætta námi.
Nemendur sem vita nú þegar að þeir hætta námi í
lok yfirstandandi annar eiga að senda inn skriflega uppsögn sem fyrst (einum mánuði fyrir annarlok).
VMA íbúar.
VMA-íbúar sem eru að hætta námi í lok desember eiga að
skila skriflegri uppsögn núna í nóvember til að komast hjá því að greiða húsaleigu eftir að þeir eru fluttir af
görðunum.
Þeir VMA-íbúar sem munu hætta námi um annarskil vegna
ófullnægjandi námsframvindu eiga að senda skriflega uppsögn til undirritaðra í desember þegar niðurstaða annarprófa er ljós.
Við þessar aðstæður er uppsagnarfresturinn einn mánuður frá næstu mánaðarmótum/áramótum og þeir munu
því þurfa að greiða húsaleigu fyrir janúar.
MA íbúar.
MA-íbúar sem eru að hætta námi í lok janúar eiga
að skila skriflegri uppsögn í desember til að komast hjá því að greiða húsaleigu eftir að þeir eru fluttir af
görðunum.
Þeir MA-íbúar sem munu hætta námi um annarskil vegna ófullnægjandi
námsframvindu eiga að senda skriflega uppsögn til undirritaðra í janúar þegar niðurstaða annarprófa er ljós. Við
þessar aðstæður er uppsagnarfresturinn einn mánuður frá næstu mánaðarmótum og þeir munu því þurfa að
greiða húsaleigu fyrir febrúar
09.11.2009
Á miðvikudaginn 18. NÓV
verður Open-Mic night í setustofunni! Allar græjur verða á staðnum, svo það eina sem þú þarft að hafa með þér er
hljóðfæri eða röddina. Að sjálfsögðu mega allir koma þó þeir ætli sér ekki að spila eða syngja, snakk og drykkir
verða á svæðinu. Mætum klukkan 20:00 og höfum þetta svolítið kósí!
24.09.2009
Halló halló !
Nú þegar allir íbúar heimavistar eru komnir á staðinn er búið að skipa heimavistarráð. Ekki þurfti að kjósa
í þetta sinn af því að svo fáir buðu sig fram.
Í heimavistarráði 2009-2010 eru:
Aðalbjörn Jóhannson, 5222, forseti
Jónína Lilja Pálmadóttir, 5214, varaforseti
Katharina Ragnhildur, 1215, ritari
Sunna Mjöll , 2211, fjölmiðlafulltrúi og ritstjóri vefsíðu
Helga Dögg Jónsdóttir,4109, andlegur leiðtogi og partýljón
Ástríður Ríkharðsdóttir, 310, fjármálafulltrúi
Auðbergur Gíslason, 2215, lukkudýr og sjarmatröll
Bæklingur og myndir koma fljótlega.
Við ætlum svo að reyna að gera okkar besta til að gera heimavistarlífið sem frábærast í vetur.
Knúúúúúúúúúúús,
Nýskipað heimavistarráð...
09.09.2009
Leiðrétting
Heimavistin verður opin til innritunar sem hér segir: laugardaginn 12. september frá kl. 15 og sunnudaginn 13. september
frá kl. 11, báða daga til kl. 22
Biðjumst velvirðingar á röngum tíma og dagsetningum sem eru
á heimsendu upplýsingablaði.
21.08.2009
Jæja þá er enn einn veturinn hafinn á Vistinni og bíður heimavistarráð síðasta vetrar alla íbúa
velkomna, jafnt nýja sem gamla.
.........
Munu þeir sem eru úr vistarráði síðasta vetrar og eru enn á vistinni reyna aðstoða ykkur sem þurfa
á því að halda eftir bestu getu :) þangað til næsta ráð verður kosið...
.........
Hafið það sem allra best á vistinni