30.11.2021
Próftími á heimavist hefst sunnudaginn 5. desember og þá gilda ákveðnar reglur:
Næði á að vera allan sólarhringinn.
Ekki er heimilt að hafa hjá sér gesti nema með sérstöku leyfi starfsmanns. Ekki eru veitt leyfi fyrir næturgestum meðan á próftíma stendur.
Hljómflutningstæki og sjónvörp á herbergjum og setustofum mega alls ekki valda ónæði.
Morgunmatur er virka daga kl. 7:15 – 9:15 og um helgar kl. 11:00 – 13:00. Kaffitími er alla daga frá kl. 15:00 - 16:30.
Hafið samband við starfsmann á vakt í síma 899 1602 eða 455 1602 ef þið verðið fyrir ónæði.
Gangi ykkur vel prófunum og munum að sýna tillitssemi
Starfsfólk Heimavistar MA og VMA
29.11.2021
Minnum á að hægt að sækja um heimavist fyrir vormisseri 2022. Sótt er um á heimasíðunni www.heimavist.is og í kjölfarið verður haft samband við umsækjendur.
Bendum á að þeir sem eru þegar íbúar hjá okkur þurfa ekki að sækja um.
24.11.2021
Minnum íbúa á jólahlaðborðið í kvöld og að vegna fjöldatakmarkana þarf að skrá sig í afgreiðslunni. Njótið
22.11.2021
Jólahlaðborð Heimavistar MA og VMA verður haldið næstkomandi miðvikudagskvöld, 24. nóvember, fyrir alla íbúa. Vegna fjöldatakmarkanna þurfa íbúar að skrá sig í afgreiðslunni á eina af eftirfarandi tímasetningum: kl. 17.30-18.15, 18.15-19 eða 19-19.30.
Boðið verður upp á glæsilegan matseðil í skreyttum matsal og við hvetjum íbúa til að mæta í snyrtilegum klæðnaði enda tilefnið hátíðlegt.
16.11.2021
Annað kvöld, 17. nóvember, verður jólakaffi í mötuneytinu. Boðið verður uppá kakó og smákökur. Opið verður frá 20-21.30. Allir íbúar eru velkomnir en vegna fjöldatakmarkanna þá geta ekki allir verið á sama tíma, biðlum til íbúa að sýna þá biðlund og passa uppá fjarlægðarmörkin.
16.11.2021
Athygli er vakin á að uppsögn á húsaleigusamningi við annarskil hjá íbúum MA og VMA er 30. nóvember n.k.
Skila þarf skriflegri uppsögn fyrir þann tíma til að komast hjá að greiða húsaleigu eftir annarskil.
Þeir íbúar sem hætta námi um annarskil vegna ófullnægjandi námsframvindu þurfa að senda skriflega uppsögn til undirritaðrar um leið og niðurstaða annarprófa liggur fyrir. Athugið að við þessar aðstæður er uppsagnarfresturinn einn mánuður eftir annarskil.
Uppsagnir skal senda á netfangið maria@heimavist.is
Aðrir íbúar eru með húsaleigusamning til vors.
15.11.2021
Þrátt fyrir hertar takmarkanir vegna COVID verða litlar breytingar hjá okkur vegna þess hve vel íbúar standa sig í að passa upp á sóttvarnir. Vonumst til að það haldi áfram þannig að við getum haldið starfseminni að mestu óbreyttri þannig að við þurfum ekki að herða þær.
Grímuskylda er áfram utan síns herbergis og við pössum upp á hópamyndun. Þá er rétt að minna á að persónulegar sóttvarnir eru mikilvægar.
Höldum áfram að tilkynna ef íbúar eru veikir og/eða á leið í covidtest.
12.11.2021
Í gærkvöldi var bæði haldin söngkeppni í VMA og tónlistarkeppni í MA þar sem heimavistin átti nokkra fulltrúa sem stóðu sig frábærlega. Við óskum þeim og öðrum þátttakendum innilega til hamingju !
09.11.2021
Minnum á mikilvægi þess að íbúar og/eða forráðamaður láti starfsmann á vakt vita ef íbúi er lasinn og/eða á leið í sýnatöku. Hægt er að hringja í vaktina: 899 1602 eða senda póst á heimavist@heimavist.is
Mikilvægt er að við hjálpumst að við að forðast smit. Munum grímunotkun utan herbergis og að við sinnum persónulegum sóttvörnum.
08.11.2021
Nú þurfa allir íbúar að vera með grímu á heimavistinni utan síns herbergis. Minnum einnig á aðrar persónulegar varnir eins og sprittnotkun og að virða fjarlægðarmörk.