21.12.2018
Starfsfólk heimavistar óskar útskriftarnemendum Verkmenntaskólans á Akureyri innilega til hamingju með daginn.
20.12.2018
Starfsfólk heimavistar óskar íbúum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á nýja árinu. Heimavistin verður opnuð eftir jólafrí sunnudaginn 6. janúar kl. 12.
06.12.2018
Íbúar MA og VMA eru í prófum nú í desember og þá gilda gilda ákveðnar reglur á heimavist frá 7. desember sem við biðjum alla að virða:
• Á próftíma á að vera næði allan sólarhringinn.
• Ekki er heimilt að hafa hjá sér gesti nema með sérstöku leyfi
starfsmanns.
• Ekki eru veitt leyfi fyrir næturgestum meðan á próftíma stendur.
• Morgunmatur er virka daga frá kl. 7:15 – 9:15 og um helgar kl.
10:00 – 13:00. Drykkur er alla daga kl. 15:00 - 16:30, einnig um
helgar.
• Tónlist og sjónvarp á herbergjum og á setustofu má
alls ekki valda ónæði.
• Seta í anddyri og á göngum á að vera takmörkuð.
• Bendum íbúum á að hafa samband við starfsmann á vakt í
síma 1602 (úr borðsíma) ef þið verðið fyrir ónæði.
Gangi ykkur vel i prófunum og sýnum öll tillitssemi!
06.12.2018
Kæru íbúar!
Áður en þið farið í jólafrí vinsamlegast munið að:
Hafa herbergin snyrtileg, þá verður svo gaman að koma aftur.
Fara með allt rusl af herbergjum út í gám.
Slökkva á rafmagnstækjum og ljósum.
Tæma ísskáp og örbylgjuofn.
Loka gluggum.
Stilla ofna á 3.
Skrá brottför á rauða blaðið í afgreiðslunni.
Þeir íbúar sem hætta á heimavistinni um áramót verða að hafa samband við starfsmann og fá gátlista vegna þrifa á herbergi.
Við brottför þarf að skila gátlista og herbergið er tekið út. Muna að skila lyklum og kortum.
Með jólakveðju
Starfsfólk Heimavistar MA og VMA
06.12.2018
Bílastæðin mokuð í dag kl. 17
Bílastæðin sunnan við heimavistina verða mokuð í dag kl. 17. Íbúar eru beðnir um að færa bílana sína svo hægt verði að moka stæðin.
Snemma í fyrramálið verður svo klárað að moka það sem út af stendur.
04.12.2018
Glæsilegt jólahlaðborð Heimavistarráðs framundan
Jólahlaðborð Heimavistarráðs verður haldið miðvikudagskvöldið 5. desember n.k. frá kl. 17.30-19.30 fyrir alla íbúa. Boðið verður upp á glæsilegan matseðil í skreyttum matsal og við hvetjum íbúa til að mæta í snyrtilegum klæðnaði enda tilefnið hátíðlegt.