Heimavist MA og VMA er heimavist fyrir nemendur sem stunda nám við Menntaskólann á Akureyri og Verkmenntaskólann á Akureyri. Heimavistin er staðsett á syðri brekkunni við Eyrarlandsveg, við hliðina á Íþróttahöllinni og Menntaskólanum á Akureyri. Þá er heimavistin staðsett í innan við 10 mínútna göngufæri við Verkmenntaskólann á Akureyri. Frá heimavistinni er stutt að fara m.a. í sund, í miðbæinn og matvörubúðir.
Á heimavistinni geta búið um 330 nemendur en heimavistin samanstendur af tveimur byggingum sem ganga undir nöfnunum gamla vistin og nýja vistin.
Eftirfarandi vinnureglur eru hafðar til hliðsjónar við úthlutun á leigurými á heimavistinni: