30.11.2010
Íbúar eru vinsamlegast beðnir um að athuga hvort þeir séu með þvott hjá sér sem þeir eiga ekki, og koma með hann niður
í þvottahús fyrir jólafrí.
Það bráðvantar eina hvíta skyrtu og sokkapoka með hvítum sokkum í og er sá sem gæti verið með hann beðinn um vinsamlegast
að skila honum strax niður í þvottahús!!
01.12.2010
Jólahlaðborð fyrir íbúa heimavistar verður haldið 1. desember.
Snyrtilegur klæðnaður er skylda
Smellið á lesa meira til að sjá matseðil
17.11.2010
Í fréttum að undanförnu hefur verið haft hátt um að
menntaskólanemar á leið til Akureyrar með rútu, þar sem þeir fóru út við Heimavist MA og VMA, hafi kúkað í
aftursætið á rútunni. Að sjálfsögðu vekur fréttaburður af þessu tagi athygli og hundruð nemenda í báðum þessum
skólum auk þeirra hundraða sem búa á Heimavist hafa að sjálfsögðu verið bendluð við athæfið. Fjallað er um þetta sem
nýjung, enda hafi sjóaður rútubílstjóri aldrei kynnst þvílíku á ferðum sínum.
Rannsókn hefur nú leitt í ljós að þeir nemendur úr
Menntaskólanum á Akureyri og Verkmenntaskólanum á Akureyri sem voru farþegar með rútunni í umrætt sinn eiga engan, nákvæmlega
engan þátt í því sem þarna er lýst. Hvorugur skólanna né Heimavist þeirra tengjast þessum atburði á einn eða
neinn hátt.
Blaðamennskan að baki þessari frétt er vissulega ámælis- og
vítaverð, en það hlýtur að teljast ábyrgðarhluti af hálfu rútufyrirtækisins að bera út fregn sem þessa og varpa
þar með sök á skólana báða, nemendur þeirra og heimili þeirra, Heimavistina. Því væri eðlilegt að telja að
fyrirtækið Bílar og fólk ehf., sem ekur á milli Akureyrar og Reykjavíkur undir merkjum Sterna, skuldi skólunum, Heimavistinni og nemendunum öllum
afsökun og bætur fyrir þennan áburð og komi fram með jafnskýrum hætti til að bera fregnina til baka og henni var komið á flug.
17.11.2010
Miðvikudaginn 17. nóvember klukkan 21:00 verður vídeókvöld í setustofunni.
Allir að mæta :-)
08.11.2010
Hefst á morgun þriðjudaginn 9. nóvember í mötuneytinu
Megi betra kynið vinna!