Skrifstofur lokaðar í sumar

Skrifstofur Heimavistar MA og VMA eru lokaðar vegna sumarleyfa starfsmanna. Opnum aftur þriðjudaginn 6. ágúst.

Umsækjendur um Heimavist MA og VMA skólaárið 2024-2025

Umsækjendur eiga þegar að hafa fengið svör við umsóknum. Þeir sem sóttu um eftir að umsóknarfrestur var liðinn fá svör í byrjun ágúst eftir sumarleyfi. Það er enn opið fyrir umsóknir næsta vetur. Greiðsluseðlar/kröfur vegna staðfestingar- og tryggingargjalds verða stofnaðir/-ar á kennitölu íbúa eða forráðamanna (ólögráða íbúa) í innheimtukerfi Arion banka. Eindagi staðfestingar- og tryggingargjalds er 15. júlí. Ef krafa er ekki greidd á eindaga er gert ráð fyrir að viðkomandi hafi hætt við búsetu á vistinni. Raðað verður niður á herbergi fyrstu dagana í ágúst. Ef koma þarf á framfæri breytingum vegna umsóknar þá verða þær að berast fyrir 1. ágúst á netfangið rosa@heimavist.is. Athugið að reynt verður að verða við óskum eins og hægt er. Leigusamningar og önnur gögn verða send út rafrænt viku fyrir upphaf skóla. Staðfestingar- og tryggingargjald fæst ekki endurgreitt ef hætt er við komuna á heimavistina. Bendum á að allir íbúar þurfa að skrá sig í mötuneytið og fer skráning fram hér á heimasíðunni undir Mötuneyti og þvottahús.

Brautskráning frá Menntaskólanum á Akureyri

Brautskráning verður frá Menntaskólanum á Akureyri í ÍÞróttahöllinni og hefst athöfnin kl. 10:00. Starfsfólk heimavistar óskar útskriftarnemendum Menntaskólans á Akureyri innilega til hamingju með daginn .

Umsóknarfrestur fyrir næsta skólaár

Umsóknarfrestur um heimavistina fyrir næsta skólaár var til og með 7. júní. Athugið að enn er hægt að senda inn umsóknir en þess má vænta að þær verði teknar til afgreiðslu síðar. Sækja þarf bæði um heimavistina og mötuneytið hér á heimasíðunni.