04.01.2017
Ný lög um húsnæðisbætur tóku gildi í upphafi ársins. Við þessar breytingar taka húsnæðisbætur við af húsaleigubótum. Rétt er að benda á að nokkrar breytingar hafa átt sér stað við þessi nýju lög sem vert er að kynna sér. Þannig skiptir máli hvort að íbúi eða leigutaki er orðinn lögráða eða ekki. Ef viðkomandi er undir lögaldri er sótt um húsnæðisbætur til skrifstofu viðkomandi sveitarfélags þar sem íbúinn á lögheimili. Ef íbúinn er orðinn lögráða er sótt um til skristofu Vinnumálastofnunar. Allar nánari upplýsingar er að finna á www.husbot.is
03.01.2017
Við óskum íbúum okkar gleðilegs árs og hlökkum til að sjá þau aftur. Heimavistin hefur nú verið opnuð en Menntaskólinn á Akureyri hefur starfsemi sína miðvikudaginn 4. janúar og Verkmenntaskólinn Á Akureyri föstudaginn 6. janúar.
23.12.2016
Starfsfólk heimavistar óskar íbúum og fjölskyldum þeirra gleðilegrar hátíðar. Heimavistin verður opnuð eftir jólafrí þriðjudaginn 3. janúar kl. 12.
21.12.2016
Starfsfólk heimavistar óskar útskriftarnemendum Verkmenntaskólans á Akureyri innilega til hamingju með daginn.
16.12.2016
Athygli er vakin á því að ný lög um húsnæðisbætur taka gildi 1. janúar n.k. Við þessi nýju lög taka húsnæðisbætur við af húsaleigubótum.
Nánari upplýsingar er að finna á www.husbot.is
09.12.2016
Heimavistinni verður lokað kl. 12 miðvikudaginn 21. desember. Við opnum aftur eftir áramót þriðjudaginn 3. janúar kl. 12.
Minnum íbúa á að ganga vel frá herbergjum áður en haldið er heim í jólafrí.
02.12.2016
Próftími á heimavist hefst 3.desember.
Á próftíma gilda ákveðnar reglur:
Á próftíma á að vera næði allan sólarhringinn.
Ekki er heimilt að hafa hjá sér gesti nema með sérstöku leyfi starfsmanns. Ekki eru veitt leyfi fyrir næturgestum meðan á próftíma stendur.
Morgunmatur er virka daga kl. 7:15 – 9:15 og um helgar kl. 10:00 – 13:00. Drykkur er alla daga kl. 15:00 - 16:30, einnig um helgar.
Hljómflutningstæki og sjónvörp á herbergjum og setustofum mega alls ekki valda ónæði.
Seta í anddyri og á göngum skal takmörkuð.
Reglulegum próftíma lýkur 13. desember.
Hafið samband við öryggisvakt í síma 1602 ef þið verðið fyrir ónæði.
Gangi ykkur vel i prófunum og sýnum öll tillitssemi.
28.11.2016
Jólahlaðborð Heimavistarráðs verður haldið miðvikudagskvöldið 30. nóvember frá kl. 17.30-19.30. Íbúum heimavistarinnar verður boðið upp á glæsilegan matseðil í skreyttum matsal. Íbúar eru hvattir til að mæta í snyrtilegum klæðnaði enda tilefnið hátíðlegt.
16.11.2016
Heimavistarráð stendur fyrir laufabrauðsgerð fimmtudaginn 24. nóvember kl. 20 í matsalnum. Íbúar hvattir til að mæta og hjálpast að við að skera út kökur sem verða síðan í boði á jólahlaðborðinu.
03.11.2016
Athygli er vakinn á því að uppsagnarfrestur húsaleigusamninga við annarskil er einn mánuður m.v. næstu mánaðarmót frá uppsögn samningsins. Þetta á eingöngu við þá nemendur sem hætta námi.
VMA-íbúar sem eru að hætta námi í lok desember verða að skila skriflegri uppsögn fyrir 30. nóvember til að komast hjá því að greiða húsaleigu eftir áramót.
Þeir VMA-íbúar sem hætta námi um annarskil vegna ófullnægjandi námsframvindu eiga að senda skriflega uppsögn til undirritaðrar um leið og niðurstaða annarprófa er ljós. Við þessar aðstæður er uppsagnarfresturinn einn mánuður frá næstu mánaðarmótum/áramótum og þeir munu því þurfa að greiða húsaleigu fyrir janúar.
MA-íbúar sem ljúka námi í janúar verða að skila skriflegri uppsögn í desember eða fyrr ef hægt er. Þeir sem hætta námi um annarskil vegna ófullnægjandi námsframvindu eiga að senda skriflega uppsögn til undirritaðrar um leið og niðurstaða annarprófa er ljós Við þessar aðstæður er uppsagnarfresturinn einn mánuður frá næstu mánaðarmótum og þeir munu því þurfa að greiða húsaleigu fyrir febrúar.
Uppsagnir skal senda á netfangið: rosa@heimavist.is