03.09.2020
Hannesína Schewing hjúkrunarfræðingur verður á vaktinni fyrir íbúa heimavistar í dag frá kl. 16.00-17.00.
Hannesína verður hjá okkur á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 16.00-17.00 meðan að hertar reglur gilda vegna COVID og verður með aðstöðu í anddyrinu.
Hannesína mun fara inn á herbergi viðkomandi en ef það hentar ekki verður hún með séraðstöðu fyrir íbúa á nýju vist og eins á gömlu vist.
Bendum foreldrum og forráðamönnum á að hægt er að hringja í hjúkrunarfræðing á viðtalstíma í síma 455 1611
28.08.2020
Afrit af húsaleigusamningum íbúa og staðfesting á skólavist fer í póst eftir helgi. Gögnin eru notuð við að sækja um húsnæðisbætur. Ef íbúi er undir lögaldri er sótt um húsnæðisbætur til skrifstofu viðkomandi sveitarfélags þar sem íbúinn á lögheimili. Ef íbúi er orðinn lögráða sækir viðkomandi um rafrænt á www.husbot.is
Hvetjum íbúa og forráðamenn að sækja um sem fyrst.
26.08.2020
Það er að fjölga á stóra heimilinu og því nauðsynlegt að bæta við einum lit í hólfin góðu sem skipta húsnæðinu. Í kjölfarið er nú komið nýtt skipulag á þvottatímum í þvottahúsinu. Hér má sjá nýtt skipulag.
26.08.2020
Það er að fjölga á stóra heimilinu og því nauðsynlegt að bæta við einum lit í hólfin góðu sem skipta húsnæðinu.
Blái liturinn tilheyrir 5. og 6. hæð. Þeir íbúar sem voru komnir í hús á 5. hæð fá nýjan lit á lyklakortið og gangurinn merktur upp á nýtt. Biðjum alla að virða þessar breytingar sem eru nauðsynlegar.
24.08.2020
Hannesína Schewing hjúkrunarfræðingur verður á vaktinni fyrir íbúa heimavistar í dag frá kl. 16.00-17.00.
Hannesína verður hjá okkur á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 16.00-17.00 meðan að hertar reglur gilda vegna COVID og verður með aðstöðu í anddyrinu.
Hannesína mun fara inn á herbergi viðkomandi en ef það hentar ekki verður hún með séraðstöðu fyrir íbúa á nýju vist og eins á gömlu vist.
Bendum foreldrum og forráðamönnum á að hægt er að hringja í hjúkrunarfræðing á viðtalstíma í síma 455 1611
22.08.2020
Miðvikudaginn 26. ágúst e.h. tökum við á móti MA íbúum (3. bekkur). Íbúar hafa fengið tölvupóst með nánara skipulagi og tímasetningu á móttöku. Þeir sem ekki hafa tök á að koma á úthlutuðum tíma geta haft samband í síma 899 1607 og fengið nýjan tíma úthlutað.
21.08.2020
Minnum á að hægt er að hringja í vaktsímann allan sólarhringinn.
Númerið er 899 1602
21.08.2020
Hér kemur skipulag á matmálstímum í mötuneytinu um helgar meðan að þessar aðstæður vara á heimavistinni vegna COVID.
Athugið að þetta gildir bara um helgar.
Laugardaga og sunnudaga
Morgunverður (brunch)
Rauður - frá kl. 11.00 - 11.30
Grænn - frá kl. 11.45 - 12.15
Svartur - frá kl. 12.30 - 13.00
Kvöldmatur
Rauður - frá kl. 18.00 - 18.15
Grænn frá kl. 18.25 - 18.40
Svartur frá kl. 18.50 - 19.00
20.08.2020
Á þessum sérstæðum tímum verður líka að hafa skipulag við þvottatíma í þvottahúsinu svo hægt sé að virða reglur vegna Covid.
Við höldum áfram að nota litina góðu sem nú skipta stóra heimilinu í hólf 🙂
Skipulag á þvottatímum:
Kl. 7.30 - 11
Mánudagar - Rauður
Þriðjudaga - Grænn
Miðvikudaga - Svartur
Fimmtudaga - Grænn
Föstudaga - Svartur
kl. 13 -16
Mánudaga - Svartur
Þriðjudaga - Rauður
Miðvikudaga - Grænn
Fimmtudaga - Rauður
20.08.2020
Bendum íbúum á að það er strangleg bannað að fara á milli smit-hólfa á heimavistinni (merkt með litum á lyklakorti og á göngum).
Íbúar verða að virða þessa reglu ef þeir ætla að dvelja á heimavistinni.