30.11.2020
Heimavistin verður lokuð yfir jól og áramót.
Við lokum húsnæðinu kl. 12:00 á hádegi, laugardaginn 19. desember og opnum aftur eftir jólafrí sunnudaginn 3. janúar kl. 12:00.
17.11.2020
Athygli er vakin á að uppsögn á húsaleigusamningi við annarskil hjá íbúum
MA og VMA er 30. nóvember n.k.
Skila þarf skriflegri uppsögn fyrir þann tíma til að komast hjá að greiða húsaleigu eftir annarskil.
Þeir íbúar sem hætta námi um annarskil vegna ófullnægjandi námsframvindu þurfa að senda skriflega uppsögn til undirritaðrar um leið og niðurstaða annarprófa liggur fyrir. Athugið að við þessar aðstæður er uppsagnarfresturinn einn mánuður eftir annarskil.
Uppsagnir skal senda á netfangið maria@heimavist.is
Aðrir íbúar eru með húsaleigusamning til vors.
16.11.2020
Hannesína Schewing hjúkrunarfræðingur verður á vaktinni fyrir íbúa heimavistar í dag frá kl. 16.00-17.00.
Hannesína verður hjá okkur á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 16.00-17.00 meðan að hertar reglur gilda vegna COVID og verður með aðstöðu í anddyrinu.
Hannesína mun fara inn á herbergi viðkomandi en ef það hentar ekki verður hún með séraðstöðu fyrir íbúa á nýju vist og eins á gömlu vist.
Bendum foreldrum og forráðamönnum á að hægt er að hringja í hjúkrunarfræðing á viðtalstíma í síma 455 1611
02.11.2020
Grímuskylda !
Nú þurfa allir íbúar að vera með grímu á heimavistinni utan síns herbergis.
31.10.2020
Minnum íbúa og forráðamenn á mikilvægi þess að láta starfsmann á vakt vita ef íbúi hefur fengið boð um að fara í sóttkví frá Rakningarteymi Covid, svo hægt sé að gera viðeigandi ráðstafanir.
Munum að við erum öll almannavarnir og að við stöndum í þessu saman.
15.10.2020
Hannesína Schewing hjúkrunarfræðingur verður á vaktinni fyrir íbúa heimavistar í dag frá kl. 16.00-17.00.
Hannesína verður hjá okkur á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 16.00-17.00 meðan að hertar reglur gilda vegna COVID og verður með aðstöðu í anddyrinu.
Hannesína mun fara inn á herbergi viðkomandi en ef það hentar ekki verður hún með séraðstöðu fyrir íbúa á nýju vist og eins á gömlu vist.
Bendum foreldrum og forráðamönnum á að hægt er að hringja í hjúkrunarfræðing á viðtalstíma í síma 455 1611
15.10.2020
Bendum íbúum á að þeir geta nýtt sér aðstöðu í Rósenborg fyrir áhugamálin. Rósenborg er í stuttu göngufæri frá heimavistinni 🙂
Munum eftir sóttvarnarreglum!
05.10.2020
Hannesína Schewing hjúkrunarfræðingur verður á vaktinni fyrir íbúa heimavistar í dag frá kl. 16.00-17.00.
Hannesína verður hjá okkur á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 16.00-17.00 meðan að hertar reglur gilda vegna COVID og verður með aðstöðu í anddyrinu.
Hannesína mun fara inn á herbergi viðkomandi en ef það hentar ekki verður hún með séraðstöðu fyrir íbúa á nýju vist og eins á gömlu vist.
Bendum foreldrum og forráðamönnum á að hægt er að hringja í hjúkrunarfræðing á viðtalstíma í síma 455 1611
05.10.2020
Frá og með deginum í dag, 5. október, eru eftirfarandi tímasetningar í mötuneyti.
04.10.2020
Við gerum ráð fyrir að heimavistin verði opin fyrir íbúa þar til að frekari leiðbeiningar eða fyrirmæli koma frá stjórnvöldum.
Við gerum ríkari körfu til íbúa um að sinna persónulegum sóttvörnum og að halda fjarðlægðarmörk .
Þá mega frá og með mándeginum 5. október aðeins 30 manns safnast saman líkt og verður í skólunum. Þar með þarf að breyta skipulaginu í mötuneytinu og þvottahúsi.
Biðjum íbúa að fylgjast með tilkynningum sem kunna að koma vegna þessara breyttu aðstæðna.