24.03.2021
Í ljósi hertra fjöldatakmarkana sem taka gildi nú um miðnætti og þar með lokunum í framhaldsskólum verður heimavistinni líka lokað.
Heimavistin verður lokuð frá og með miðnætti aðfaranótt 26. mars n.k. Gert er ráð fyrir að allir íbúar fari til síns heima á morgun fimmtudaginn 25. mars.
Auglýst verður um leið og það liggur fyrir hvenær við náum að opna aftur en íbúum bent á að lokunin mun vara a.m.k. fram yfir páska.
15.03.2021
Senn líður að páskafríi íbúa en báðir framhaldsskólarnir MA og VMA eru með síðasta kennsludag fyrir páska föstudaginn 26. mars. Heimavistin verður því lokuð frá kl. 12 á hádegi laugardaginn 27. mars.
Kennsla hefst í VMA þriðjudaginn 6. apríl og MA miðvikudaginn 7. apríl.
Heimavistin verður opnuð eftir páskafrí mánudaginn 5. apríl kl. 12.
10.03.2021
Í myndbandinu eru það nemendur sem kynna skólann fyrir okkur.
Hvetjum ykkur til að kíkja á það
08.03.2021
Dagskrá ársfundar:
1. Ársreikningur Lundar skólaárið 2019/2020 til kynningar.
2. Skýrsla stjórnar um starfsemi Lundar skólaárið 2019/2020.
3. Önnur mál.
Ársfundur Lundar er opinn þeim sem aðild eiga að Heimavist MA og VMA, s.s. íbúum Lundar, foreldrum og forráðamönnum íbúanna, kennurum og starfsmönnum framhaldsskólana á Akureyri auk þeirra starfsmanna sem starfa í húsakynnum Lundar. Vegna sérstakra aðstæðna eru þeir sem ætla að sækja fundinn beðnir um að láta Maríu Albínu þjónustustjóra vita á netfangið maria@heimavist.is
03.03.2021
Króli kynnti sér fjölbreytt iðn- og starfsnám og nám til stúdentsprófs í VMA. Hvetjum ykkur til að kíkja á það
24.02.2021
Frá og með 24. febrúar:
• Lágmarksfjarlægð a.m.k. einn meter.
• Grímuskylda áfram utan síns herbergis
• Foreldrar og forráðamenn geta komið inn á heimavistina en gæta þarf vel að sóttvörnum.
• Setustofan verður opin fyrir íbúa – íbúar þurfa að sótthreinsa alla snertifleti eftir notkun.
• Áfram er hægt að fara í matar-, hádegis- og kvöldmat á hefðbundnum opnunartíma. Nota skal grímur þar til er matast. Muna persónulegar sóttvarnir að þvo hendur og spritta fyrir mat og viðkomu á sameiginlegum snertiflötum.
• Boðið verður upp á kaffi í mötuneytinu frá 15 til 16.30 virka daga.
27.01.2021
Minnum íbúa og forráðamenn á að láta starfsmann á vakt vita ef íbúar eru lasnir. Vaktsíminn er 899 1602 eða 455 1602.
Starfsfólk getur litið við hjá íbúum, komið með mat, hitamæli o.þ.h.
25.01.2021
Eins og fram kemur á heimasíðu Verkmenntaskólans á Akureyri er nýbúið að gefa út bækling um það víðtæka og fjölbreytta nám sem í boði er, hvort heldur er í bóknámi eða verknámi.
Hægt er að nálgast bæklinginn hér
21.01.2021
Nú þegar Hlíðarfjall hefur opnað í vetur með takmörkunum þó, þá viljum við benda íbúum á að þeir geta geymt skíði og bretti og annan búnað í sérstakri læstri aðstöðu sem einnig er með myndavél. Geymslan er merkt og er í kjallara gömlu vistar.
Lykill íbúa gengur að geymslunni. Sprittstöð er við geymsluna!
14.01.2021
Mötuneytið getur núna tekið við 30 íbúum í senn vegna covid. Íbúar mæta út frá því hvar þeir búa á vistinni. Minnum einnig á að grímuskylda er utan síns herbergis og passa þarf uppá fjarlægðarmörk.
MORGUNMATUR
Gamla vist kl. 7.00 - 7.15
Nýja vist: 1. og 2. hæð kl. 7.20 – 7.35
3. og 4. hæð kl. 7.40 – 7.55
5. og 6. hæð kl. 8.00 – 8.15.
Gamla vist kl. 8.20 – 8.30
Nýja vist: 1. og 2. hæð kl. 8.35 – 8.45
3. og 4. hæð kl. 8.55 – 9.05
5. og 6. hæð kl. 9.10 – 9.20.
KVÖLDMATUR
Gamla vist kl. 17.45 – 18.10
Nýja vist 1. og 2. hæð kl. 18.15 – 18.40
3. og 4. hæð kl. 18.45 – 19.10
5. og 6. hæð kl. 19.15 – 19.40.
MORGUNMATUR - HELGAR
Gamla vist kl. 11.00 – 11.25
Nýja vist: 1. og 2. hæð kl. 11.30 – 11.55
3. og 4. hæð kl. 12.00 – 12.25
5. og 6. hæð kl. 12.30 – 12.55
KVÖLDMATUR - HELGAR
Gamla vist kl. 18.00 – 18.15
Nýja vist: 1. og 2. hæð kl. 18.20 – 18.35
3. og 4. hæð kl. 18.40 – 18.55
5. og 6. hæð kl. 19.00 – 19.15