08.08.2023
Hér eru ýmsar hagnýtar upplýsingar fyrir nýja íbúa sem eru að flyta á heimavistina.
Þegar íbúar koma á heimavistina þurfa þeir að hafa með sér:
Sæng og kodda.
Sængurver, koddaver og lök.
Handklæði.
Rúmteppi ef vill.
Körfu eða annað hentugt undir óhreinan þvott.
Herðatré.
Leirtau, hnífapör og glös/könnur eru ekki til staðar á herbergjum.
Hlífðarlök eru til staðar og hægt að fá til skiptanna í anddyri. Athugið að hlíðarlak þarf að vera á rúmdýnu og einnig lak frá íbúa.
Íbúar fá þvottanet með tuskum og svampi. Íbúar fá þvottaefni til að þrífa herbergi og baðherbergi þar sem það á við. Ryksugur og moppur eru til staðar á hverri hæð fyrir sig.
Aðeins má hengja upp myndir eða annað á veggi með "kennaratyggjói" til að koma í veg fyrir að málningin skemmist. Bendum á að ekki er hægt að hengja upp ledborða.
Íbúar á nýju vist hafa aðgang á herbergjum að örbylgjuofni og litlum ísskáp. Þeir íbúar sem eru á gömlu vist hafa ekki aðgang að ísskáp á herbergjum, en sumir koma með lítin kæliskáp með sér.
Íbúar geta fengið að geyma töskur á svokölluðu töskulofti. Þá er læst aðstaða í kjallara til að geyma skauta, skíði, skíðaklossa, hjól o.s.frv.
08.08.2023
Móttaka íbúa Verkmenntaskólans á Akureyri er miðvikudaginn 16. ágúst frá klukkan 13:00 til 20:00 og fimmtudaginn 17. ágúst frá klukkan 08:30 til 18:00. Kennsla hefst í VMA samkvæmt stundaskrá föstudaginn 18. ágúst. Íbúar VMA ættu að fá samninga og önnur gögn frá okkur eftir helgina.
Móttaka íbúa Menntaskólans á Akureyri verður sunnudaginn 20. ágúst og mánudaginn 21. ágúst. Samningar og önnur gögn berast rafrænt.
20.06.2023
Hér koma svör við helstu spurningum fyrir umsækjendur um Heimavist MA og VMA skólaárið 2023-2024:
Gert er ráð fyrir að svör við umsóknum verði send út með tölvupósti föstudaginn 23. júní.
Það er enn opið fyrir umsóknir næsta vetur. Umsækjendur sem sóttu um eftir að umsóknarfrestur var liðinn fá svör í byrjun ágúst eftir sumarleyfi.
Greiðsluseðlar/kröfur vegna staðfestingar- og tryggingargjalds verða stofnaðir/-ar á kennitölu íbúa eða forráðamanna (ólögráða íbúa) í innheimtukerfi Arion banka.
Eindagi staðfestingar- og tryggingargjalds er 15. júlí.
Ef krafa er ekki greidd á eindaga er gert ráð fyrir að viðkomandi hafi hætt við búsetu á vistinni.
Raðað verður niður á herbergi fyrstu dagana í ágúst.
Breytingar á umsókn s.s. varðandi tegund af herbergi eða herbergisfélaga verða að hafa borist fyrir 1. ágúst á netfangið rosa@heimavist.is. Athugið að reynt verður að verða við óskum eins og hægt er.
Leigusamningar og önnur gögn verða send út rafrænt viku fyrir upphaf skóla.
Staðfestingar- og tryggingargjald fæst ekki endurgreitt ef hætt er við komuna á heimavistina.
Bendum á að allir íbúar þurfa að skrá sig í mötuneytið og fer skráning fram á heimasíðu heimavistar.
17.06.2023
Starfsfólk heimavistar óskar útskriftarnemendum MA innilega til hamingju með daginn.
12.06.2023
Bendum á að enn er hægt að sækja um á heimavistinni næsta skólaár. Sótt er um á heimasíðunni undir umsóknir.
07.06.2023
Það er opið fyrir umsóknir um heimavist næsta skólaár 2023-2024.
Sótt er um á heimasíðunni: Umsókn um heimavist | Heimavist MA og VMA
26.05.2023
Starfsfólk heimavistar óskar útskriftarnemendum Verkmenntaskólans á Akureyri innilega til hamingju með daginn.
24.05.2023
Það er opið fyrir umsóknir um heimavist næsta skólaár 2023-2024.
Sótt er um á heimasíðunni: Umsókn um heimavist | Heimavist MA og VMA
19.05.2023
Nú eru Íbúar þegar farnir að skila af sér herbergjum og halda út í vorið. Við minnum alla á að þrífa herbergin samviskusamlega og skila þeim eins og þau tóku við þeim við komuna á stóra heimilið. Ræstiefni, tuskur og leiðbeiningar “tékklistar” eru í anddyri hjá starfsmanni.