02.02.2010
Elsku bestu heimavistaríbúar !
Stelpurnar í þvottahúsinu báðu okkur um að setja inn auglýsingu hérna á
síðuna. Svo virðist vera að þessi blessuðu föt okkar íbúanna sem að við setjum í þvott haldi bara áfram að hlaupa
burt..
Til að nefna dæmi þá hefur ung stúlka hérna á heimavistinni góðu, týnt
nærfatapokanum í þvotti! Það er nú ekki gott að vera undirfatalaus svo að ef að einhver annar íbúi hefur fengið ókunnugan
nærfatapoka í hólfið sitt(sem hefur þá væntanlega endað uppi á herbergi) þá biðjum við hann um að vera svo vænn
að skila honum aftur í þvottahúsið.
Þetta á einnig við um allar flíkur sem að þið fáið í ykkar hólf og
þið kannist bara ekkert við að eiga. Þið þurfið ekki að gera annað en að skottast niður í þvottahús og fleygja þessu
mjúklega inn í gegnum götin í þvottahúsinu. Svo einfalt er það. Og ef að þú ert löt/latur og nennir ekki að gera
þér auka ferð niðr' í þvottahús þá getið þið bara tekið þetta á leiðinni í mat. Þar sem að
við reiknum fastlega með því að þið borðið einstöku sinnum.
Takktakk,
Heimavistarráð !
01.02.2010
Þorrablót Heimavistar verður næstkomandi fimmtudag,
4.febrúar. Matsalurinn opnar klukkan 18:00 en borðhald hefst klukkan 18:30.
Klukkan 20:00 hefjast skemmtiatriði
í setustofu.
21.01.2010
Elsku bestu heimavistarbúar :D
Ég var að setja inn nýja könnun, og væruð
þið til í að vera svo æðisleg að svara henni fyrir okkur í heimavistarráði.
Þannig er mál með vexti að okkur datt í hug að
hafa smá ball, þar sem dansaðir yrðu gömlu dansarnir, eftir þorrablótið(sem er 4. febrúar n.k). En við vitum ekki alveg hvort að
það sé einhver áhugi fyrir því að dansa gömlu dansana. Okkur finnst voðalega tilgangslaust að fá einhvern/einhverja til þess að
spila undir dansi, ef að það væru svo engir sem að myndu dansa. Þannig að nennið þið að hjálpa okkur og svara
könnuninni.
Með fyrirfram þökk :D
f.h. heimavistarráðs,
frk. fjölmiðlafulltrúi :)
18.01.2010
NÝR MEÐLIMUR Í HEIMAVISTARRÁÐI !!!!!!
Við í heimavistarráði bjóðum Hilmar Smára Birgisson velkominn í ráðið
!
Einnig viljum við þakka Agnesi og Berki fyrir drengilega kosningabaráttu.
Við viljum líka benda fólki á það að framundan er þorrablót, það er dagsett 4.febrúar.Þannig að
endilega takið það kvöld frá. Við ætlum að semja einhver skemmtiatriði fyrir það, og því viljum við biðja ykkur, kæru
heimavistarbúar, að koma með hugmyndir til okkar. Ef að þið vitið um eitthvað fyndið, kjánalegt, vandræðalegt eða eitthvað
álíka sem að íbúar á heimavistinni hafa gert, þá endilega hafið samband við einhverja af okkur í heimavistarráði. Við
viljum endilega verða með góð skemmtiatriði og við þurfum ykkar hjálp .. !! Endilega komið hugmyndum á framfæri, ekki vera feimin, við
bítum ekkert voðalega fast.
Það sem er planað í febrúar-apríl er: Karlakveld, konukveld, poolmót stórkvöldvaka, tailenskt matarkvöld,
lokakvöldvaka og kannski eitthvað fleira sem að á hreinlega eftir að skipuleggja.
12.01.2010
Þeir sem að bjóða sig fram í heimavistarráð eru :
Hilmar Smári Birgisson
Agnes Ýr Vorsveinsdóttir
Börkur Guðmundsson
KOSNING FER FRAM MÁNUDAGINN 18.JANÚAR Í ANDDYRINU FRÁ KLUKKAN 16:00-20:00
06.01.2010
Við í heimavistarráði
óskum eftir nýjum fulltrúa í ráðið. Æskilegt er að hann sé í VMA. En ef einhverjir MA-ingar hafa
mikinn áhuga þá geta þeir einnig boðið sig fram, og verður þá kosið milli þeirra ef að enginn úr VMA hefur
áhuga.
Ef að þú hefur
áhuga þá skaltu annað hvort hafa samband við hr. húsbónda eða einhvern í heimavistarráði(Aðalbjörn, Helgu,
Jónínu, Sunnu, Ástu eða Kati) fyrir mánudaginn 11. jan.
En svona ef að þið skylduð vilja vita eitthvað hvað við erum að bralla í heimavistarráðinu
þá erum við núna að plana kvöldvökur sem að verður dreift fram á vor. Svo hafa einnig komið hugmyndir um útivistardag uppi fjalli,
bíóferð, poolmót og fleira. Við viljum endilega fá ykkar hugmyndir og ykkar komment á það hvað er áhugi fyrir að gera! Semsagt ef
að þú hefur einhverja hugmynd eða tillögu um hvað eigi að gera þá endilega hafðu samband við okkur eða kommentaðu á
þetta blogg..
Einnig viljum við vita hvort að það sé einhver áhugi fyrir t.d bíóferð( þar sem að bara
heimavistin væri með t.d. sambíó salinn og fengum að sjá einhverja nýja mynd og kannski yrði innifalið popp og kók í
miðaverðinu) eða útivistardegi(þar sem að annað hvort yrði farið að renna sér á þotum, plastpokum , skíðum eða fara
í göngutúr uppá ?Súlur?..).. Endilega látið okkur vita ef að áhugi er fyrir hendi.
Það verður margt í gangi fram á vor svo
... bíðið spennt elskurnar ...
Knús,
heimavistaráð, sem að sárlega vantar nýjan fulltrúa. !
13.12.2010
JÓLAFRÍ
Vistinni verður lokað kl.13:00
laugardag 18.des., þá eiga allir að vera farnir heim í JÓLAFRÍ.
Heimavistin verður opnuð aftur eftir jólafrí mánudaginn 3. janúar,
kl. 09:00
Ath. Ath. Ath. Ath. Ath. Ath. Ath. Ath.
ATH. Áður en þið yfirgefið herbergin, gangið úr skugga um
að engin rafmagnstæki séu í sambandi, gluggar lokaðir, ofnar stilltir á 3, að ekki leki úr vatnskrönum og að herbergi séu hrein og
snyrtileg.
Ekki gleyma að tæma rusladalla og fara með rusl út í
gám.
P.s. munið eftir að
taka með ykkur jólagjafirnar, sparifötin og skó sem þið þurfið að nota um jólin, því að það er of seint að
bjarga málunum á Þorláksmessu ef þið gleymið einhverju.
Gleðileg
jól. Starfsfólk Lundar