19.06.2019
Hér koma svör við helstu spurningum fyrir umsækjendur heimavistar skólaárið 2019-2020:
Svör við umsóknum fóru í póst 18. júní.
Það er enn opið fyrir umsóknir næsta vetur. Umsækjendur sem sækja um eftir 18. júní fá staðfestingu í ágúst eftir sumarleyfi.
Greiðsluseðlar/kröfur vegna staðfestingar- og tryggingargjalds verða stofnaðir/-ar á kennitölu íbúa eða forráðamanna (ólögráða íbúa) í innheimtukerfi Arion banka.
Eindagi staðfestingar- og tryggingargjalds er 12. júlí.
Ef krafa er ekki greidd á eindaga er gert ráð fyrir að viðkomandi hafi hætt við búsetu á vistinni.
Raðað verður niður á herbergi fyrstu dagana í ágúst.
Breytingar á umsókn s.s. varðandi tegund af herbergi eða herbergisfélaga verða að hafa borist fyrir 1. ágúst á netfangið rosa@heimavist.is
Leigusamningar og önnur gögn verða sendir í pósti viku fyrir upphaf skóla.
Gengið er frá skráningu í mötuneyti við komuna á heimavistina.
Staðfestingar- og tryggingargjald fæst ekki endurgreitt ef hætt er við komuna á heimavistina.
17.06.2019
Starfsfólk heimavistar óskar útskriftarnemendum Menntaskólans á Akureyri innilega til hamingju með daginn.
11.06.2019
Þó að umsóknarfrestur fyrir næsta skólaár sé liðinn þá eru enn laus pláss. Hægt er að sækja um hér á heimasíðunni.
27.05.2019
Opið fyrir umsóknir um heimavist fyrir skólaárið 2019 - 2020. Umsóknarfrestur er til 7. júní n.k. Sótt er um hér á heimasíðunni.
25.05.2019
Starfsfólk heimavistar óskar útskriftarnemendum Verkmenntaskólans á Akureyri innilega til hamingju með daginn.
24.05.2019
Opið fyrir umsóknir um heimavist fyrir skólaárið 2019 - 2020. Umsóknarfrestur er til 7. júní n.k. Sótt er um hér á heimasíðunni.
13.05.2019
Nú er próftími á heimavistinni en þá gilda gilda ákveðnar reglur sem við biðjum alla að virða:
• Á próftíma á að vera næði allan sólarhringinn.
• Ekki er heimilt að hafa hjá sér gesti nema með sérstöku leyfi
starfsmanns.
• Ekki eru veitt leyfi fyrir næturgestum meðan á próftíma stendur.
• Morgunmatur er virka daga frá kl. 7:15 – 9:15 og um helgar kl.
10:00 – 13:00. Drykkur er alla daga kl. 15:00 - 16:30, einnig um
helgar.
• Tónlist og sjónvarp á herbergjum og á setustofu má
alls ekki valda ónæði.
• Seta í anddyri og á göngum á að vera takmörkuð.
• Bendum íbúum á að hafa samband við starfsmann á vakt í
síma 1602 (úr borðsíma) ef þið verðið fyrir ónæði.
Gangi ykkur vel i prófunum og sýnum öll tillitssemi!
08.05.2019
Nú þegar íbúar eru farnir að huga að brottför þá minnum við á að skila inn þvottahólfslyklum í þvottahúsið. Íbúar fylla út skilamiða og fá endurgreiddar 3000 kr.
03.05.2019
Við höfum opnað fyrir umsóknir um heimavist fyrir skólaárið 2019 - 2020. Umsóknarfrestur er til 7. júní n.k. Sótt er um hér á heimasíðunni.
26.04.2019
Við erum að leita að starfsfólki til að aðstoða okkur tímabundið við þrif og frágang á húsnæði Heimavistar MA og VMA.
Tímabilið er frá miðjum maí til 8. júní og er unnið frá kl. 08:00 -16:00.
Allar nánari upplýsingar veitir Rósa María í síma 455 1607. Skriflegar umsóknir berist á netfangið: rosa@heimavist.is