14.08.2017
Nú styttist í að Menntaskólinn á Akureyri hefji starfsemi sína og heimavistin opni fyrir íbúum skólans.
Heimavistin verður opnuð fyrir innritun íbúa MA miðvikudaginn 30. ágúst frá klukkan 13:00 til 20 og fimmtudaginn 31. ágúst frá klukkan 08:30 til 18.
Íbúar fá leigusamninga og önnur gögn send viku fyrir upphaf skóla.
09.08.2017
Þegar íbúar koma á heimavistina þurfa þeir að hafa með sér:
Sæng og kodda.
Sængurver, koddaver og lök.
Handklæði og rúmteppi ef vill.
Körfu eða annað hentugt undir óhreinan þvott.
Herðatré.
Leirtau, hnífapör og glös/könnur eru ekki til staðar á herbergjum.
Hlífðarlök eru til staðar og hægt að fá til skiptanna í anddyri.
Íbúar fá tuskur, svampa og þvottaefni til að þrífa herbergi og baðherbergi þar sem það á við. Ryksugur og moppur eru til staðar á hverri hæð fyrir sig.
Íbúar geta endurraðað húsgögnum á herbergjum en verða að skilja við þau eins og þau komu að þeim í upphafi. Mikilvægt er að passa upp á að skemma ekki gólfefni og húsgögn við flutningana. Íbúar geta aðeins hengt upp myndir eða annað á veggi með "kennaratyggjói" til að koma í veg fyrir að málningin skemmist.
Íbúar á nýju vist hafa aðgang á herbergjum að örbylgjuofni og litlum ísskáp. Þeir íbúar sem eru á gömlu vist hafa ekki aðgang að ísskáp á herbergjum, en sumir koma með lítin kæliskáp með sér.
Íbúar geta fengið að geyma töskur á svokölluðu töskulofti. Þá er aðstaða í kjallara til að geyma skauta, skíði, skíðaklossa o.s.frv.
08.08.2017
Örfá laus pláss í vetur! Eigum laus pláss á heimavistinni í vetur vegna forfalla. Áhugasamir sækja um á heimavist.is
03.08.2017
Nú styttist í að Verkmenntaskólinn hefji starfsemi sína og heimavistin opni fyrir íbúum skólans.
Heimavistin verður opnuð fyrir innritun íbúa VMA fimmtudaginn 17. ágúst frá klukkan 13:00 til 20 og föstudaginn 18. ágúst frá klukkan 08:30 til 18.
Íbúar fá leigusamninga og önnur gögn send viku fyrir upphaf skóla.
29.06.2017
Skrifstofur heimavistar verða lokaðar í júlí vegna sumarleyfa starfsmanna. Skrifstofur verða opnaðar aftur föstudaginn 4. ágúst.
20.06.2017
Hér koma svör við helstu spurningum fyrir umsækjendur heimavistar skólaárið 2017-2018:
Svör við umsóknum fóru í póst 20. júní s.l.
Mikill fjöldi umsókna barst og ljóst að einhverjir lenda á biðlista. Enn er opið fyrir umsóknir á biðlista og skýrist staðan á umsóknunum í ágúst.
Greiðsluseðlar/kröfur vegna staðfestingar- og tryggingargjalds verða stofnaðir/-ar á kennitölu íbúa eða forráðamanna (ólögráða íbúa) í innheimtukerfi Arion banka.
Eindagi staðfestingar- og tryggingargjalds er 14. júlí.
Ef krafa er ekki greidd á eindaga er gert ráð fyrir að viðkomandi hafi hætt við búsetu á vistinni og nemendur teknir inn af biðlista.
Tekið verður inn af biðlista í byrjun ágúst.
Raðað verður niður á herbergi fyrstu dagana í ágúst.
Breytingar á umsókn s.s. varðandi tegund af herbergi eða herbergisfélaga verða að hafa borist fyrir 1. ágúst á netfangið rosa@heimavist.is
Leigusamningar og önnur gögn verða sendir í pósti viku fyrir upphaf skóla.
Gengið er frá skráningu í mötuneyti við komuna á heimavistina.
Staðfestingar- og tryggingargjald fæst ekki endurgreitt ef hætt er við komuna á heimavistina.
17.06.2017
Starfsfólk heimavistar óskar útskriftarnemendum Menntaskólans á Akureyri innilega til hamingju með daginn.
11.06.2017
Umsóknarfrestur um heimavist skólaárið 2017-2018 rann út 9. júní s.l. Enn er hægt að sækja um pláss á vistinni en viðkomandi fer sjálfkrafa á biðlista. Gert er ráð fyrir að umsækjendur fái svör við umsóknum í kringum 23. júní.
10.06.2017
Umsóknarfrestur um heimavist næsta skólaár var til 9. júní s.l. Unnið verður úr umsóknum næstu viku en hægt er að sjá þær vinnureglur sem hafðar eru til hliðsjónar við úthlutun á leigurými á heimavistinni hér á heimasíðunni.
Gert er ráð fyrir að hægt verði að senda umsækjendum bréf um 20. júní. Rétt er að vekja athygli á að staðfestingar- og tryggingargjald er alls kr. 45.000 sem greiða þarf í júlí. Verði seðilinn ekki greiddur á eindaga í júlí er gert ráð fyrir að viðkomandi hafi hætt við búsetu á vistinni og nemendur á biðlista verða teknir inn. Tekið verður inn af biðlista í byrjun ágúst.
07.06.2017
Opið fyrir umsóknir fyrir næsta skólaár. Umsóknarfrestur um Heimavist Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri fyrir skólaárið 2017 - 2018 er til 9. júní. Sótt er um rafrænt á heimasíðunni.