14.03.2013
Heimavistarráð stendur fyrir páskabingói þriðjudagskvöldið 19. mars kl. 20 á setustofu heimavistar. Glæsilegir vinningar verða í boði t.d. sundmiðar, pizzur og síðast en ekki síst páskaegg.
22.02.2013
Ársfundur Lundar 2012 verður fimmtudaginn 28. febrúar n.k. kl. 16 í setustofu heimavistar.
Dagskrá ársfundar:
1. Ársreikningur Lundar skólaárið 2011/2012 til kynningar.
2. Skýrsla stjórnar um starfsemi Lundar skólaárið 2011/2012.
3. Önnur mál.
Ársfundur Lundar er opinn þeim sem aðild eiga að Heimavist MA og VMA, s.s. íbúum Lundar, foreldrum og forráðamönnum íbúanna, kennurum og starfsmönnum framhaldsskólanna á Akureyri auk þeirra starfsmanna sem starfa í húsakynnum Lundar.
21.02.2013
Heimavistarráð stendur fyrir Pub Quis spurningaleik miðvikudagskvöldið 27. febrúar kl. 20 á setustofu heimavistar. Íbúar eru hvattir til að koma og spreyta sig og eiga saman skemmtilega kvöldstund. Verðlaun í boði.
31.01.2013
Gangafundir fyrir íbúa nýju vistarinnar verða mánudaginn 4. febrúar. Tímasetningar verða hengdar upp á hverjum gangi fyrir sig.
Gangafundir á gömlu vistinni verða miðvikudaginn 6. febrúar og verða fundartímar hengdir upp á hverjum gangi fyrir sig.
Skyldumæting er á fundina, en ef uppgefinn fundartími hentar ekki, má mæta á öðrum tíma.
31.01.2013
Heimavistarráð stendur fyrir bíókvöldi þriðjudagskvöldið 5. febrúar kl. 20 í setustofunni.
Sýnd verður myndin Svartur á leik. Boðið verður upp á popp og snakk.
Allir íbúar hvattir til að mæta
09.01.2013
Próftími á Heimavist MA og VMA hefst 8. janúar kl. 14:00
Á próftíma eru allir tillitssamir og ganga hljóðlega um.
Engar gestakomur eru leyfðar nema með leyfi vaktmanns. Næturgestir eru ekki leyfðir á próftíma.
21.08.2013
Opnunartími mötuneytis er sem hér segir:
Morgunmatur 7.15- 9,15.
Hádegismatur 11,30- 13,15
Kvöldmatur 17,45- 19,30.
Um helgar:
Morgunmatur 10-13.
Kvöldmatur 18-19.