18.08.2021
Minnum íbúa og forráðamenn á að það er mikilvægt að láta starfsmann á vakt vita ef íbúar eru lasnir og eins ef þeir eru á leið í sýnatöku vegna COVID. Vaktsíminn er 899 1602 eða 455 1602.
Starfsfólk getur litið við hjá íbúum, komið með mat, hitamæli o.þ.h.
14.08.2021
Minnnum íbúa á að grímuskylda er á heimavist utan síns herbergis og virða þarf fjarlægðarmörk !
Einnig þurfa allir íbúar að sýna við innritun að þeir séu með rakningarappið í símanum.
13.08.2021
Heimavistin verður opin fyrir innritun mánudaginn16. ágúst frá klukkan 13:00 til 20:00 og þriðjudaginn 17. ágúst frá klukkan 08:30 til 18:00.
Hlökkum til að sjá ykkur á heimavistinni
13.08.2021
Húsaleigusamningar MA íbúa eru farnir í póst og ættu því að berast íbúum í næstu viku. Reynt var að verða við óskum íbúa um herbergi eins og hægt var.
09.08.2021
Hér eru ýmsar hagnýtar upplýsingar fyrir nýja íbúa sem eru að flyta á heimavistina.
Þegar íbúar koma á heimavistina þurfa þeir að hafa með sér:
Handspritt og handsápu til að hafa á herbergi
Fjölnota grímur eða einnota til skiptanna
Sæng og kodda
Sængurver, koddaver og lök
Handklæði
Rúmteppi ef vill
Körfu eða annað hentugt undir óhreinan þvott
Herðatré
Leirtau, hnífapör og glös/könnur eru ekki til staðar á herbergjum.
Hlífðarlök eru til staðar og hægt að fá til skiptanna í anddyri. Athugið að hlíðarlak þarf að vera á rúmdýnu og svo lak frá íbúa.
Íbúar fá þvottanet með tuskum og svampi. Íbúar fá þvottaefni til að þrífa herbergi og baðherbergi þar sem það á við. Ryksugur og moppur eru til staðar á hverri hæð fyrir sig og sótthreinsa þarf áhöld fyrir og eftir notkun.
Íbúar geta endurraðað húsgögnum á herbergjum en verða að skilja við þau eins og þau komu að þeim í upphafi. Aðeins má hengja upp myndir eða annað á veggi með "kennaratyggjói" til að koma í veg fyrir að málningin skemmist.
Íbúar á nýju vist hafa aðgang á herbergjum að örbylgjuofni og litlum ísskáp. Þeir íbúar sem eru á gömlu vist hafa ekki aðgang að ísskáp á herbergjum, en sumir koma með lítin kæliskáp með sér.
Íbúar geta fengið að geyma töskur á svokölluðu töskulofti. Þá er aðstaða í kjallara til að geyma skauta, skíði, skíðaklossa o.s.frv.
09.08.2021
Húsaleigusamningar VMA íbúa eru farnir í póst og ættu því að berast íbúum næstu daga. Reynt var að verða við óskum íbúa um herbergi eins og hægt var.
05.08.2021
Undirbúum móttöku íbúa VMA og MA
Við höfum tekið til starfa eftir sumarfrí og erum byrjuð að undirbúa komu íbúa.
Móttaka íbúa Verkmenntaskólans á Akureyri er mánudaginn 16. ágúst frá klukkan 13:00 til 20:00 og þriðjudaginn 17. ágúst frá klukkan 08:30 til 18:00. Kennsla hefst í VMA samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 18. ágúst. Íbúar ættu að fá samninga og önnur gögn frá okkur í pósti eftir helgina.
Athugið að móttakan er miðuð við gildandi sóttvarnartakmarkanir. Ef breyting verður á verður það auglýst sérstaklega.
Móttaka íbúa í MA verður sunnudaginn 22. ágúst og mánudaginn 23. ágúst. Samningar ættu að berast vikunni áður.
20.08.2021
Þegar íbúar fara úr húsi hvort sem farið er heim um helgar eða gist út í bæ þá er mikilvægt að íbúar skrái það í gegnum heimasíðuna okkar heimavist.is