Varðandi rafræna húsaleigusamninga

Kæru íbúar og forráðafólk. Við bendum á að mikilvægt er að hlaða niður húsaleigusamningnum af signet.is og eiga hann tiltækan í tölvu á pdf formi. Þannig getið þið sótt um húsnæðisbætur. Ólögráða íbúar / forráðamenn íbúa sækja um hjá sínu sveitarfélagi, þar sem viðkomandi hefur lögheimili. Þeir íbúar sem hafa náð 18 ára aldri þurfa að sækja um húsnæðisbætur í gegnum HMS. Athugið að ef viðkomandi nær 18 ára aldri yfir skólaárið þarf að sækja um í afmælismánuði. Sjá nánar hér.