Athygli er vakin á því að uppsögn á húsaleigusamningi við annarskil hjá íbúum MA og VMA er 30. nóvember n.k. Skila þarf skriflegri uppsögn fyrir þann tíma til að komast hjá því að greiða húsaleigu eftir annarskil. Athugið að þetta gildir bara um þá íbúa sem hætta námi um áramót. Ef íbúi hættir námi um annarskil vegna ófullnægjandi námsframvindu þarf viðkomandi að senda skriflega uppsögn til undirritaðrar um leið og niðurstaða annarprófa liggur fyrir. Uppsagnir skal senda á netfangið rosa@heimavist.is
Aðrir íbúar eru með húsaleigusamning til vors.