Skipulagsbreytingar standa yfir við heimavistina. Helstu breytingarnar felast í því að leggja meiri áherslu á félagslega og uppeldislega þjónustu við íbúa með því að ráða vistarsjóra með uppeldis- eða félagslega menntun og reynslu af rekstri . Samhliða þessu á að breyta starfi húsbónda og dagvinnufólks. Auglýst verður eftir starfsfólki með hæfni og reynslu af því að vinna með ungmennum. Mögulega verða ráðnir í afleysingar og hlutastörf nemendur úr fjórða bekk úr hópi íbúa heimavistarinnar. Mikilvægast er að viðhalda og efla heilbrigði, forvarnir og félagslíf íbúa. Nauðsynlegt er að styrkja þennan þátt í skipulagi heimavistarinnar, ásamt því að halda í horfinu þeim góða rekstri sem þar fer fram en á þeim átta starfsárum sem sameiginleg heimavist MA og VMA hefur verið rekin, hefur reksturinn verið skv. áætlun og rekstraforsendur eru í dag traustar. Nýlega endurnýjaði Lundur leigusamning um rekstur Hótels Eddu Akureyri í húsakynnunum yfir sumarið.
Sífellt fjölbreytilegri hópur nemenda sækir um dvöl á heimavistinni með mismundandi þarfir fyrir aðstoð og handleiðslu. Heimavistin er afar vinsæl og er fullskipuð fyrir næsta vetur. Vegna þessara skipulagsbreytinga hefur framkvæmdastjóra, húsbónda og starfsmönnum í dagvinnu verið sagt upp störfum. Starfsfólk verður ráðið fyrir haustið.
Því starfsfólki sem hverfur á brott er þakkað fyrir störf þeirra við stofnunina.
Stjórn Lundar sem fer með rekstur heimavistarinnar skipa:
Kristín Sigfúsdóttir formaður
Jónína Guðmundsdóttir ritari
Björk Guðmundsdóttir
Magnús Garðarsson
Jóhannes Ingi Torfason