Nú eru íbúar VMA í prófum og þá gilda ákveðnar umgengnisreglur:
- Próftími hefst föstudaginn 1. maí kl. 16:00.
- Á próftíma á að vera næði allan sólarhringinn.
- Ekki er heimilt að hafa hjá sér gesti nema með sérstöku leyfi starfsmanns. Ekki eru veitt leyfi
fyrir næturgestum meðan á próftíma stendur.
- Morgunmatur er virka daga kl. 7:15 – 9:15 og um
helgar kl. 10:00 – 13:00. Drykkur er alla daga kl. 15:00 - 16:30, einnig um helgar.
- Hljómflutningstæki og sjónvörp á herbergjum og setustofum mega alls ekki valda
ónæði.
- Seta í anddyri og á göngum skal takmörkuð.
- Reglulegum próftíma lýkur 15. maí.
- Hafið samband við öryggisvakt í síma 1602 ef þið verðið fyrir ónæði.
Gangi ykkur vel i prófunum og sýnum öll tillitssemi.
Starfsfólk Heimavistar MA og
VMA