Móttaka íbúa Verkmenntaskólans á Akureyri og húsaleigusamningar.

Móttaka íbúa VMA er sunnudaginn 18. ágúst frá klukkan 13:00 til 18:00 og mánudaginn 19. ágúst frá klukkan 08:30 til 17:00. Á mánudag er gert ráð fyrir að allir nýnemar mæti í skólann. Kennsla hefst í VMA samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 20. ágúst.
Húsaleigusamningar og önnur gögn verða send rafrænt út um miðja viku.