Kæru íbúar.
Miðvikudagskvöldið 4. mars kl. 19:30 ætla nokkrir 2. árs læknanemar að vera með
forvarnarfræðslu á setustofunni fyrir íbúa heimavistarinnar. Læknanemarnir eru á vegum „Ástráðs“ félags
læknanema um forvarnarstarf.
Rætt verður t.d. um kynheilbrigði, ótímabærar þunganir og kynsjúkdóma.
Endilega nýtið ykkur að hitta læknanemana til að fræðast og forvitnast.