Frá Menntasjóði námsmanna: Opnað verður fyrir umsóknir um jöfnunarstyrk 1. september, sjá hér.
Nemendur sækja um á Mitt LAN með rafrænum skilríkjum. Þeir nemendur sem ætla að stunda nám á bæði haustönn og vorönn , eru hvattir til að sækja um báðar annir í einu.
Jöfnunarstyrkur skiptist í dvalarstyrk og akstursstyrk:
Akstursstyrkur er ætlaður þeim nemendum sem keyra daglega í skólann frá lögheimili sínu. Lögheimili má þó ekki vera í nágrenni skóla, sjá töflu um skilgreiningar á nágrenni skóla á heimasíðu sjóðsins. Akstursstyrkur er einnig fyrir þá nemendur sem búa ekki í foreldrahúsum en geta ekki sýnt fram á leigugreiðslur.
Dvalarstyrkur er fyrir þá nemendur sem flytja a.m.k. 30km frá lögheimili sínu og fjölskyldu til þess að geta stundað nám sitt, það er, þeir nemendur sem eru á heimavist og/eða greiða leigu.
Nemendur verða að hafa gild tengsl við lögheimili en gild tengsl eru:
Nemendur verða að taka próf í 20 einingum.