Lundur sjálfseignarstofnun boðar til ársfundar fimmtudaginn 16. febrúar n.k. Ársfundurinn verður haldinn í setustofu heimavistar og hefst kl.
16.15. Dagskrá ársfundar: 1. Ársreikningur Lundar skólaárið 2010/2011 til kynningar. 2. Skýrsla stjórnar um starfsemi Lundar
skólaárið 2010/2011. 3. Önnur mál.
Ársfundur Lundar er opinn þeim sem aðild eiga að Heimavist MA og VMA, s.s. íbúum Lundar, foreldrum og forráðamönnum íbúanna,
kennurum og starfsmönnum framhaldsskólanna á Akureyri auk þeirra starfsmanna sem starfa í húsakynnum Lundar.